Persónuvernd

Avery ehf., kt. 560322-1190, Ármúla 26, 108 Reykjavík, ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga vegna pantana hjá Oral Smith. Þú getur haft samband á eyglo@hyped.is.

Engin afgreiðsla eða afhending

Upplýsingar vegna pöntunar

Við notum nafn, netfang, símanúmer og val á Dropp stöð til að afgreiða pöntunina og hafa samband um hana. Einnig geymum við pöntunarnúmer, vöruval og greiðslustöðu. Upplýsingarnar eru notaðar til að efna samning um kaupin og uppfylla skyldur vegna bókhalds.

Greiðslur og afhending

Teya sér um greiðsluna. Við sendum Teya upplýsingar sem þarf til greiðslu og kvittunar, en geymum ekki kortanúmer eða öryggisnúmer korts. Dropp fær þær upplýsingar sem þarf til að koma sendingunni á valda stöð og láta þig vita þegar hún er tilbúin til afhendingar. Vefurinn og pöntunargögn eru hýst með Sites og Cloudflare.

Varðveisla og réttindi

Upplýsingar eru varðveittar eins lengi og þarf vegna afgreiðslu, þjónustu og lögbundinna skyldna. Þú getur óskað eftir aðgangi að upplýsingum um þig, leiðréttingu eða eyðingu þeirra þar sem það á við. Einnig er hægt að beina kvörtun til Persónuverndar.

Við notum ekki pöntunarupplýsingar til að senda markpóst án sérstaks samþykkis.