Skoða tækið ↗
EINFALDARI MUNNHIRÐA

Auðveldara að halda
tönnunum hreinum.

Auðveldar þrif í kringum brýr, krónur og tannplanta.

Oral Smith skolar burt matarleifum milli tanna og þar sem erfitt er að koma tannburstanum að.

Skoða Oral Smith ↗
16.900 kr. með VSK
FYRIR DAGLEGA NOTKUN
Oral Smith munnskolstæki í hvítum og svörtum lit
↗Hreinsar með vatni.
Einfalt í notkun.
01 Hreinsar þar sem erfitt er að komast að02 Stillanlegur vatnsþrýstingur03 Fæst í svörtu og hvítu
ÞEKKIR ÞÚ ÞETTA?

Kemstu ekki að
með tannburstanum?

Það getur verið erfitt að ná matarleifum sem sitja fastar milli tanna eða undir brúm. Tannburstinn kemst ekki alls staðar að og tannþráður getur verið snúinn í notkun.

Munnskolstækið hjálpar þér að skola þessi svæði með vatni. Haltu áfram að bursta og fylgdu ráðleggingum tannlæknisins um hreinsun milli tanna.

Hentar tækið mér? ↗
SVONA NOTARÐU TÆKIÐ

Fjögur einföld skref.

Byrjaðu á Soft-stillingunni
á meðan þú venst tækinu.

  1. 01

    Fylltu vatnstankinn

    Fylltu tankinn með vatni og settu hann aftur á tækið.

  2. 02

    Veldu stút og stillingu

    Smelltu stútnum í tækið. Veldu síðan stillingu með M-hnappnum.

  3. 03

    Settu stútinn í munninn

    Ekki kveikja fyrr en stúturinn er kominn í munninn. Ýttu þá á ON/OFF.

  4. 04

    Fylgdu tannholdslínunni

    Beindu vatnsbununni meðfram tannholdslínunni og milli tanna.

Sjá allar notkunarleiðbeiningar
ORAL SMITH / MUNNSKOLSTÆKIOral Smith munnskolstæki í hvítum litHvítur · Oral Smith
FYRIR DAGLEGA NOTKUN

Oral Smith
munnskolstæki

Hreinsaðu milli tanna og í kringum brýr og krónur með vatni. Sex stútar fylgja með og þú getur stillt styrk vatnsbununnar.

16.900 kr. með VSK
Veldu lit: Hvítur

Sending á næstu Dropp stöð · Frí sending · 1–3 virkir dagar

Stillanleg vatnsbunaVatnstankur í handfanginuFæst í svörtu og hvítuSex stútar fylgja með
Sjá leiðbeiningar
LEIÐBEININGAR FYRIR ORAL SMITH

Notkun og umhirða.

Stútar, stillingar og hleðsla.
Svona notarðu tækið og heldur því hreinu.

Sex stútar fylgja með

Með tækinu fylgja þrír venjulegir stútar, tunguskrapari, stútur fyrir spangir og mjúkur stútur.

3 Venjulegir stútar
Til daglegra þrifa milli tanna.
1 Tunguskrapari
Til að hreinsa tunguna.
1 Stútur fyrir spangir
Til að hreinsa í kringum spangir.
1 Mjúkur stútur
Fyrir viðkvæmt tannhold.
Stillingar og þrýstingur

Veldu stillingu með M-hnappnum.

Normal
Fyrir dagleg þrif.
Soft
Mildari vatnsbuna. Gott að byrja á þessari stillingu.
Pulse
Vatnsbunan kemur í púlsum.
DIY
Þú stillir styrk vatnsbununnar.

Svona notarðu DIY-stillinguna

Veldu fyrst DIY-stillinguna.

  1. Haltu ON/OFF-hnappnum inni til að auka vatnsþrýstinginn smám saman.
  2. Vatnsbunan verður smám saman sterkari. Þegar hámarksþrýstingi er náð helst hann óbreyttur í stutta stund.
  3. Slepptu hnappnum við þann styrk sem þú vilt nota.

Tækið man stillinguna næst þegar þú kveikir á því.

Hleðsla og rafhlöðustaða

Hladdu tækið með USB-C-snúru. Til að athuga hleðsluna heldurðu M-hnappnum (Mode) inni.

Ljósin sýna hversu mikil hleðsla er eftir.
LjósRafhlöðustaða
4 ljósMeira en 75%
3 ljós50–75%
2 ljós25–50%
1 ljósMinna en 25%
Hreinsun og umhirða
  • Ekki sökkva tækinu í vatn eða annan vökva.
  • Vatnstankinn má þvo með sápuvatni.
  • Ekki nota sterk hreinsiefni eða leysiefni til að þrífa tækið.
Öryggi við notkun
  • Ekki nota vatn sem er heitara en 40 °C.
  • Ekki halla tækinu við notkun.
  • Tækið slekkur sjálfkrafa á sér eftir tveggja mínútna notkun.
  • Ekki sökkva tækinu í vatn eða annan vökva.
GOTT AÐ VITA

Spurningar?
Hér eru svörin.

Það helsta um notkun og þrif.

Hentar munnskolstæki ef ég er með tannplanta eða brú?

Munnskolstæki getur auðveldað þrif í kringum brýr og tannplanta. Ræddu við tannlækninn þinn um hvort tækið henti þér og hvaða stillingu og stút sé best að nota, sérstaklega ef þú hefur nýlega farið í meðferð.

Kemur tækið í stað tannburstunar eða tannþráðar?

Þú þarft áfram að bursta tennurnar. Notkun tækisins er viðbót við dagleg þrif. Fylgdu ráðleggingum tannlæknisins um tannþráð og aðrar leiðir til að hreinsa milli tanna.

Er erfitt að nota tækið?

Það getur tekið nokkur skipti að venjast vatnsbununni. Byrjaðu á Soft, hallaðu þér yfir vaskinn og settu stútinn í munninn áður en þú kveikir.

Hvernig þríf ég tækið?

Vatnstankinn má þvo með sápuvatni. Ekki sökkva tækinu í vatn eða nota sterk hreinsiefni eða leysiefni. Sjá leiðbeiningar um hreinsun og umhirðu.

Get ég pantað núna?

Ekki enn. Áður en við byrjum að taka við pöntunum birtum við upplýsingar um afhendingu, sendingarkostnað, greiðslur og skilmála hér á síðunni.

ORAL SMITH MUNNSKOLSTÆKI

Gerðu tannhirðuna
aðeins auðveldari.

Veldu lit ↗
PÖNTUNIN ÞÍN

Ganga frá pöntun

Oral Smith · Hvítur16.900 kr.
Sending á Dropp stöð0 kr.
Samtals með VSK16.900 kr.

Sending á næstu Dropp stöð. Veldu stöðina sem hentar þér best hér að neðan. Áætlaður afhendingartími er 1–3 virkir dagar.

Veldu hvar þú vilt sækja sendinguna.

Skoða stöðvar og opnunartíma á korti Dropp ↗

Við erum að ganga frá greiðslum á síðunni.

Þú greiðir á öruggri greiðslusíðu Teya. Við geymum ekki kortaupplýsingar.